Fyrir nokkrum árum stofnaði fólk úr Hafnarfirði Skíða og Skautafélag Hafnarfjarðar til að vinna að uppbyggingu vetraríþrótta í Hafnarfirði sem síðar breyttist í Skíðadeild Hauka þar sem fólk lagði sig fram um að vinna að skíðaíþróttinni þeirri uppbyggingu sem þurfti til.
Sótt var um að byggja skála fyrir deildina í Bláfjöllum en ekkert varð af því nema teikningar og þá var fenginn einn hluti af gömlum færanlegum skólastofum frá Öldutúnsskóla þar sem nokkrir handlagnir menn með Guðmund Rúnar Guðmundsson (Gumma Löggu) í forsvari og var því komið til bráðabirgða þangað til búið væri að byggja skála, en því miður varð ekki af því því sú forgangsröðun sem er við líði hér í Hafnarfirði leyfði það ekki heldur skildi byggja fleiri íþróttahús og betri fótboltavelli.
En því miður eiga þær forgangsraðanir sem eru við líði innan ÍBH ekki rétt á sér,eru úreltar.
Skíðadeild Hauka lognaðist út vegna áhugaleysis hjá Haukum og Hafnfirðingum.Þá var brugðið á það ráð að reyna að stofna Vetraríþróttafélag VÍH sem skyldi halda úti vetraríþróttum í Hafnarfirði en því miður þá hafði fólk ekki trú á að bæjarfélagið myndi gera nokkuð frekar fyrir VÍH frekar en það sem á undan var komið.
Staðan er þessi það er ekkert starfandi félag með þessar íþróttir í Hafnarfirði þó bæjarkerfið hafi lofað t.d þá var grein á gaflarinn.net 2008:
Skautahöll rís í Hafnarfirði
Gæti risið á næstu tveimur til þremur árum.
Góðar líkur eru á að næsta skautahöll landsins rísi í Hafnarfirði en sérstakur starfshópur hefur verið skipaður þar til að fara yfir helstu atriði og skipuleggja þá vinnu sem framkvæma þarf til að slíkt mannvirki geti orðið að veruleika.
Skautahöll er það íþróttamannvirki sem er ódýrt að byggja og reka því nýting hennar er svo mikil.
Greinahöfundur hefur lagt sig fram við að reyna að koma vetraríþróttum fram á síðustu 15 árum t.d. með setu í stjórn Skíðadeildar Hauka auk þess að sitja Í stjórn Skíðasvæðanna sem fulltrúi Hafnarfjarðar, auk þess hef ég skoðað uppbyggingu hjá Birninum í Skautaíþróttum og Krullu hjá Skautafélagi Akureyrar.
Með vetraríþrótta kveðju.
Páll Eggertsson